Hér eru til sölu þrjár bækur eftir Þorstein Úlfar Björnsson. Þær hafa allar vakið athygli fyrir óvenjuleg efnistök. Hjalladalur kom út 8. október 2008 í aðeins 100 árituðum og tölusettum eintökum.
Ef þú hefur hug á að eignast einhverja þessara bóka geturðu sett inn pöntun hér og bókin verður prentuð og send til þín í póstkröfu.
Hvað er fíkn? Hvað er ávani? Ánetjun? Dóp? Hvað er áfengi í raun og veru? Kaffi? Kóladrykkir og súkkulaði? Hvernig, hvar, með hverjum, af hverju og hvenær? Hér er fjallað um dópneyslu á hispurslausan og allt öðruvísi hátt.
Send í póstkröfu.
Verð: 6.690.- prentuð, 2.490.- PDF
Vönduð ljósmyndabók sem prentuð er með 7 lita stafrænni
prentun í vönduðu handunnu harðspjalda bandi sem er
plastdregið og lakkað. Upplag er afar takmarkað. Bókin
er árituð af höfundi og númeruð.
Væntanleg fyrir iPad á íslensku og ensku.
Send í póstkröfu.
Verð: 15.000.- prentuð, 1.490.- PDF
Villigarðurinn sem hefur verið kölluð „költbók“ hefur verið vandfundin um skeið. Hér er hún komin. Einning má nálgast nýja ókeypis rafræna útgáfu fyrir iPad – og ókeypis útgáfu í PDF. Villigarðurinn hefur breytt afstöðu margra til umhverfisins, að ekki sé talað um garðvinnu.
Send í póstkröfu.
Verð: 1.990.- prentuð